Judoland.isJudoland.is Heimir Haraldsson Norðurlandameistari 2001 Vallarskeifan Höskuldur og Snævar í léttri sveiflu
FRÉTTIR



VISSIR ÞÚ ?

Bjarni Skúla
Dagbók Bjarna Skúla



25.3.2003
Sensei í heimsókn
Góðann daginn öllsömul og velkomin á síðuna mína.
Það er búið að vera mikið að gera undanfarnar helgar og ég hef keppt á tveimur mótum.
Í Póllandi og á Ítalíu, Pólland var algjög hörmung og datt ég út í fyrstu umferð gegn Victor Florescu frá Moldavíu, hann náði því að verða annar á HM í Birmingham 1999. Hann mætti síðan í aðra umferð með ónýtt hné og játti sig sigraðan.

Á Ítalíu síðustu helgi glímdi ég ágætlega og vann í fyrstu umferð frekar auðveldlega á móti Slóvena en svo glímdi ég við heimamann (ítala) Francesco Lepre og endaði glíman 5-3 honum í vil.

Næstu helgi keppi ég í Tallin Eistlandi og er ég sannfærður um góðann árangur þar.
Með í för verður Sævar Sigursteinsson landsliðsþjálfari en hann var einnig með á opna Ítalska og er það mikill andlegur stuðningur að hafa þjálfara með.
Hann er hjá mér og Venna í Borás fram yfir helgi að undirbúa okkur fyrir keppnina.
Það er held ég hægt að fylgjast með keppninni á ippon.org beint um næstu helgi.
En bless í bili.


6.3.2003
Loforð svikin
Ég veit að ég lofaði að skrifa meira í fyrradag en Venni kom heim fyrr en ég hélt og tölvan því upptekin.
Ég var kominn að Matsumae Cup í Hilloröd Danmörku held ég.
Matsumae cup er alltaf skemmtilegt mót og erfitt vegna þess hve margir japanir taka þátt og eins og margir vita eru þeir fremstir í júdó í heiminum í dag og hafa eiginlega alltaf verið.
Japanir eru mjög vel þjálfaðir og júdó þeirra einkennist af árásargirni svokallað atacking judo á engilsaxnesku.
Mér gekk svona þokkalega að glíma en var frekar hægur og var þreyttur eftir miklar æfingar og ég klikkaði á að hvíla nóg fyrir mótið, í stuttu máli lenti ég í þriðja sæti og tapaði á refsistigi fyrir manni sem ég hef unnið auðveldlega tvisvar áður.
Daginn eftir keppti ég í opna flokkinum sem ég hefði betur sleppt. Vann japana í fyrstu og í annarri glímu en í ippon kastinu tognaði ég á millirifjavöðva og ég var búinn að vera.
Ég reyndi á árangurs að vera með í æfingabúðunum svo að hálftíma hlaup komu í staðinn fyrir júdóæfingar hjá mér.
Í lok vikunnar náði ég að jafna mig þokkalega og fór í æfingabúðir í Frövi sem er rétt hjá Örebro í Svíþjóð, og er því kominn á þokkalegt skrið aftur.
Annars er allt komið í sinn vanagang aftur hér á Skolgatan 48, Venni kominn heim frá fjögurra daga ferð frá Íslandi. Nei við fórum aðeins út af vananum hér og fengum næturgest frá Túnis, hann Morat félagi okkar.
En fylgist endilega með því núna keppum við á þremur A-mótum í röð og byrjum 15. mars.
Sæl að sinni. Ég reyni að láta ekki líða langt þangað til að ég skrifa aftur.


3.3.2003
A-mótin og æfingar
Góðann daginn öll sömul.
Ég veit að ég er ekki búinn að vera duglegur að skrifa en ég lofa að reyna að bæta mig svo að allir lesendur mínir(ha ha)hafi nóg að lesa.
En það er búið að vera mikið að gera hjá mér og frá miklu að segja. Byrjum á Opna franska súper A-mótinu, ég sat hjá í fyrstu glímu en átti von á að mæta heimsmeistaranum, Demontfocaun frá Frakklandi, en hann tapaði í sinni fyrstu glímu fyrir Marakkóbúa sem varð fimmti á HM en í -81kg flokki, ég kastaði Marakkóbúanum eftir u.þ.b. eina og hálfa mínútu á vinstrihandar ippon seoinage og skoraði ippon. Áfram í næstu glímu, Alarza frá Spáni vann Zivadauri frá Georgíu en Zivadauri varð annar á HM og var heimsmeistari unglinga árið 2000 ef ég man rétt.
Glíma okkar Alarza var hörð og spennandi, eftir eina mínútu fengum við báðir shido (refsistig) fyrir að sækja ekki nóg en við vorum í harðri baráttu um tökin, hægt og sígandi tók ég yfirhöndina í tökunum því mér fannst ég vera sneggri og sterkari en hann er aðeins lengri en ég og mjög erfitt að kasta. Ég fékk annað refsistig fyrir að halda pistolgripi, sem ég gerði ekki, ég hélt bara mjög framarlega í ermina hans. Tíminn var að vera búinn og ég gat ekki kastað honum hann slapp út úr öllum mínum brögðum og ég tapaði 5-3. Hann hélt áfram og lenti í öðru sæti.
Þá var það glíma okkar Zivadauri, hann er sterkur glímumaður og með óhefðbundinn stíl eins og allir Georgíubúar, ég komst ekki inn í glímuna og þar með var þáttöku minni á þessu móti lokið.
Æfingabúðirnar sem eru alltaf á eftir þessu móti eru frægar fyrir að allir bestu júdómenn heims (sem keppa einnig á mótinu) taka þátt í þeim. Tvær tveggja tíma æfingar á dag frá mánudegi til fimmtudags, helvíti erfitt.
Gummi Sævars og Íris kærastan hans sem búa í Gautaborg keyrðu alla leið til Parísar og horfðu á mótið, það var mjög gaman að hafa þau þarna og alltaf uppörvandi að hafa einhverja sem eru að fylgjast með manni.
En meira á morgunn, ég lofa.
Bless.


31.1.2003
Spurningakeppni
Í dag samdi ég spurningakeppni á netinu og lagði fyrir nokkra útvalda félaga, í stuttu máli hakkaði hann Ódi keppnina með 100% rétt svör. En ég held að það sé maðkur í mysunni, það sem vakti athygli mína var að ótrúlega margir svöruðu spurningunni um afmælisdag Jigoro Kano rétt, ég þurfti að fletta því upp, og held ég að fleiri hafi gert slíkt hið sama.
Ég fór að vinna aðeins í dag hjá honum Per og var hann Tommy mættur á svæðið, hann er mjög sérstakur gaur og þykir samlokur mjög góðar, það gerðist um daginn að einn sölumaðurinn varð alveg bjálaður því það var búið að éta samlokuna hans sem hann ætlaði að borða í kaffinu, allir grunuðu Tommy um að hafa étið samlokuna en hann þverneitaði því, það var ekki fyrr en næsta dag að hann játaði á sig verknaðinn og gaf þá skýringu að honum þætti einfaldlega samlokur svo góðar að hann stóðst ekki freistinguna.
Þegar ég vaknaði í morgunn var Venni þegar kominn á fætur og hann var ekki í góðu skapi, en það var ekki fyrr en um daginn að ég fattaði af hverju, við vorum netlausir, og hann gat ekki lagað það. Það var ekki fyrr en hann hringdi í símafyrirtækið að þetta komst í lag og þá Venni líka.
Kvöldæfingin var mjög góð, við vorum rúmann einn og hálfan tíma bara í tækniæfingu með hraða og sprengikrafts ívafi. Það er mjög gott að einblína á þá þætti þegar stutt er í mót. Á morgunn held ég svo áfram að keyra upp sprengikraft og hraða með lyftingum og sprettum, opna franska leggst vel í mig.
Ef þið viljið senda mér línu og koma með athugasemdir eða koma einhverju áleiðis þá er pósturinn minn ippon89@hotmail.com
Sæl að sinni.


30.1.2003
Payback
Jæja góðir hálsar, það styttist nú í súper A-mótið í París sennilega sterkasta mót í heimi fyrir utan HM, EM og ÓL. Það er bara að duga eða að drepast þarna úti, það er ekkert ókeypis á þessu móti og ekki heldur æfingabúðunum, frakkar eru algjörir bastarðar þegar kemur að júdói og vilja margir meina að þeir séu það alltaf.
Undirbúningur okkar í æfingabúðunum í Mittersill gekk vel og er ég í góðum gír.
Það var svolítið erfitt að koma sér í gang svona rétt eftir jólin en ég glímdi mikið og einbeitti mér mikið að tímasetningu í glímum.
Vistin þarna í Austurríki var betri en seinast þegar ég fór þangað, það var ekki eins kallt og þá, nú var bara rétt yfir frostmarki en seinast var yfir 20 stiga frost.
Eins og allir vita Þá er sjónvarp í Þýskalandi og þar í kring allt talsett og þar af leiðandi drepleiðinlegt að horfa á það, til dæmis hver nennir að horfa á Vini eða Spin City á þýsku? Kvöldið ónýtt.
Við félagarnir vorum svo heppnir að pakka með myndum fyrir ferðatölvuna og horfðum á nokkrar myndir til að stytta okkur stundir. Eitt kvöldið horfðum við á Jeepers Creepers, sem er hrollvekja, mjög góð að mínu mati, ég var búinn að sjá hana áður og vissi hvernir allt fór en hann Venni litli fór á taugum við að horfa á hana, hann fór sirka 4 sinnum á klósettið og var sífellt að öskra á fólkið í myndinni,"nei ekki gera þetta, þið eruð algjörir hálfvitar, þið eigið skilið að deyja fyrir heimskuna í ykkur" Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei séð Venna eins hræddan og þá, litla skinnið.
Seinustu vikur hef ég verið að æfa tvisvar á dag, hlaupa eða lyftingar á morgnanna og júdóæfingar á kvöldin, svo í næstu viku mun ég létta æfingarnar aðeins til að toppa á opna Franska.
Svo þegar tölvukallinn minn(Daníel Reynisson) er búinn að koma síðunni minni í lag mun ég hafa æfingaáætlunina uppi svo hver sem er getur séð hvernig ég æfi.
En Bless í bili.


10.1.2003
Æfingabúðunum lokið
Jæja! Júkkarnir fóru heim í dag, 40 klukkutíma rútuferð, það sem þessi grey leggja á sig.
Ég vaknaði í dag rétt fyrir hádegi því í gærkvöldi fórum við með júkkana að borða og vorum svolítið frammeftir, svo um eittleitið í dag fór ég að vinna í verksmiðjunni hjá Per Kjellin sem er aðalþjálfari klúbbsins, mér er treyst fyrir því að merkja vinnufatnað með logoum hjá einhverjum fyrirtækjum.
Ég fór síðan í kaffihléinu niður í bæ á bílaleigubíl sem klúbburinn er með til að ná í miðana okkar Venna til Mittersil Austurríki, og þegar ég var á leiðinni til baka stoppaði ég fyrir framan gangbraut til að hleypa fólki yfir götuna, það er mjög mikilvægt hér í Svíþjóð, þá keyrði aftan á mig strætó að vísu mjög hægt þannig að ég varð að gera skýrslu með bílstjóranum og skila henni inn til bílaleigunnar, enginn slasaðist.
Það er eiginlega orðinn fastur liður hjá mér og Venna að tala við Vigga í gegnum tölvuna á kvöldin og spila Delta force, hann hakkar okkur alltaf en við verðum betri og betri með hverju kvöldinu.
En fleiri sögur seinna.


8.1.2003
Kominn til Svíþjóðar
Góðann daginn allir.
Nú er ég staddur í Borás Svíþjóð ásamt góðum félaga mínum honum Venna, við búum saman í hjarta bæjarins og í þessari glæsilegu íbúð. Þegar við komum hingað eftir áramót eftir langa dvöl heima tókum við loksins eftir því að öll blómin voru orðin ansi þurr og við ættum að vökva þau, en það var of seint og þau öll dauð. Svo hringdi eigandinn og vildi koma í heimsókn og fara yfir samningsatriði, við urðum dauðhræddir um að hún myndi brjálast yfir blómunum en það reddaðist allt.
Í gær lauk æfingabúðum hér í Borás og voru þar saman komnir bestu menn Svía og svo nokkrir Júgóslavar, Pólverjar, Finnar og svo ég, Venni og Víkingur úr Ármanni, hann stóð sig eins og hetja og gerði sitt besta til að berja útlendingana.
Út af æfingabúðunum var engin júdóæfing í dag, þá fórum ég og Venni að lyfta ásamt Sænskum félaga okkar, honum Pontus Hjerm.
Annars er ekki mikið um að vera hjá mér núna en ég fer þann 15. til Austurríkis í æfingabúðir.
Meira á morgunn. Bless.


7.11.2002
Finnland
Gódann daginn allir!
Tá er ég maettur til Finnlands og var ferdin frá Tokyo löng og leidinleg. Níu og hálfur tími en ég var samt feginn ad komast frá Japan.
Í raun tók flugid adeins 3 tíma tví ad ég fór frá Japan klukkan 12 en lenti í Finnlandi klukkan 15, Groundhog day, merkilegt.
Til ad koma svefninum í röd og reglu sem fyrst hélt ég mér vakandi, til ad sofna ekki fór ég í bíó, Rauda drekann, nýjustu Hannibal Lecter myndina, ég hefdi betur sleppt tví, ég var of hraeddur til ad sofna.
Á morgun koma allir íslensku keppendurnir hingad og hlakka ég mikid til, tad er búin ad vera mikil einvera hjá mér, mig grunar ad ég sé ordinn furdulegur. Tad verdur ad hafa tad.
Ég hef trú á ad tad verdi gódur árangur hjá íslenska lidinu og vid sýnum ad júdó á íslandi er á uppleid.


5.11.2002
Japansferd lokid
Tad verdur alltaf kaldara og kaldara a morgnana her, eg vaknadi i nott ad drepast ur kulda og klaeddi mig i sokka, buxur og peysu til ad sofa i, ein nott i vidbot og svo fer eg til Finnlands.
Eg fekk heimsokn um helgina, tad var felagi minn hann Gulli sem einhverjir aettu ad tekkja ur judo gym, en hann er busettur i Tokyo nuna, eg heimsotti hann um daginn og hann kom til Tsukuba ad skoda nuna um helgina.
Tad er nu ekki mikid ad skoda her en vid reyndum, vid byrjudum a ad fara i japanskt badhus, tad er stadur med fullt af heitum pottum og koldum, sauna og allskonar doti. Tad sem mer er minnistaedast ur badhusinu er einn heiti potturinn, tad var risa tepoki i honum og atti tad ad vera rosa hollt og gott fyrir mann en eftir 2 minutur var mann byrjad ad svida ut um allt og dofnadi svidinn ekki fyrr en vid henntum okkur i skitkaldan pott i 10 minutur. Svo tegar vid vorum ad fara var okkur hent ut fyrir ad vera med tattoo.
A morgun fer eg til Finnlands og veit ekki hvenaer eg get skrifad meira, tannig ad bless i bili.


31.10.2002
japan
Tegar eg vaknadi i morgun klukkan 0640 var skitkalt i herberginu, tad er ad kolna i japan og tad er engin hitun i husunum her nuna, eg held ad folk kveiki a ofnunum i januar. Eg nadi ad drosla mer a faetur og fara a hlaupaaefingu klukkan 0700 eins og venjulega, tetta er klukkutima aefing sem er ymist sprettir eda langhlaup.
Lanid lek vid mig i dag tvi tad var heitt vatn i sturtunni en husvordurinn tekur tad stundum af, morgunmatur a sama stad og venjulega, Lawson heitir bullan, og er tad svokollud convenient store.
Tad er fin internet adstada her a haskolasvaedinu sem eg fer a hverjum morgni til ad skoda moggan og postinn minn.
Tetta er fyrsti dagurinn i bokinni og aetla ekki ad bladra endalaust.
Skrifa meira seinna.


Leppin sport

Júdósamband Íslands